Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 25. maí 2013 19:33
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Markalaust í fjörugum hálfleik
Staðan er markalaus í gríðarlega fjörugum úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þar sem þýsku stórveldin Bayern Munchen og Borussia Dortmund mætast.

Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og ráðleggur Fótbolti.net öllum að horfa á þennan stórkostlega knattspyrnuleik.

Dortmund byrjaði leikinn betur og bjargaði Manuel Neuer sínum mönnum trekk í trekk með góðum markvörslum.

Um miðjan hálfleikinn tók Bayern að eiga hættulegri færi en Roman Weidenfeller var hreint út sagt magnaður í marki Dortmund og brenndi Arjen Robben meðal annars af nokkrum dauðafærum.
Slapp
banner
banner