Borussia Dortmund 1 - 2 Bayern Munchen
0-1 Mario Mandzukic ('60)
1-1 Ilkay Gundogan ('68, víti)
1-2 Arjen Robben ('89)
0-1 Mario Mandzukic ('60)
1-1 Ilkay Gundogan ('68, víti)
1-2 Arjen Robben ('89)
Stærsta leik tímabilsins í knattspyrnuheiminum var að ljúka með dramatískum sigri Bayern Munchen á helstu andstæðingum sínum síðustu ár, Borussia Dortmund.
Leikurinn var ótrúlega fjörugur frá upphafi til enda en staðan var markalaus þegar blásið var til leikhlés.
Roman Weidenfeller og Manuel Neuer voru langbestu leikmenn fyrri hálfleiksins og vörðu þeir hvert skotið fætur öðru.
Eftir korter af síðari hálfleik var Mario Mandzukic búinn að koma Bayern yfir. Arjen Robben og Franck Ribery sundurspiluðu þá vörn Dortmund áður en Robben gaf boltann á Mandzukic sem gat ekki annað en skorað úr auðveldu færi.
Dortmund jafnaði leikinn átta mínútum síðar eftir glórulausan varnarleik hjá Jerome Boateng og Dante, en sá síðarnefndi gerðist brotlegur á Marco Reus og víti dæmt.
Robert Lewandowski steig ekki á vítapunktinn en í hans stað skoraði Ilkay Gundogan úr vítaspyrnunni.
Leikurinn var jafn en undir lokin tók Bayern stjórn á leiknum og skoraði Arjen Robben sigurmarkið á 89. mínútu eftir laglega sókn.




