Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 14:10
Ívan Guðjón Baldursson
PSG vill að Allegri taki við af Ancelotti
Samkvæmt ítölskum og frönskum fréttamiðlum er Massimiliano Allegri arftaki Carlo Ancelotti við stjórnvöl Paris Saint-Germain í Frakklandi.

Roma vill fá Allegri til sín en líklegt er að þjálfarinn hafni Roma til að taka við stórliði PSG sem er franskur deildarmeistari og stóð sig með sæmd í meistaradeildinni á síðasta tímabili.

Franskir miðlar segja að Leonardo, framkvæmdastjóri PSG, hafi haft samband við Allegri því félaginu vantar þjálfara eftir brottför Ancelotti til Real Madrid, sem verður staðfest á næstu dögum.

Allegri myndi þá þjálfa Zlatan Ibrahimovic og Thiago Silva sem hann þjálfaði hjá Milan og hélt mikið uppá.
Slapp
banner
banner