Tony Pulis var í sex mánuði að rannsaka hvernig væri best að endurskipuleggja Stoke City og það tók hann þrjá mánuði að skrifa skýrslu um það eftir að hafa skoðað hvernig félög sem hann telur svipuð Stoke hafa verið að vinna í erlendum deildum.
Hann skoðaði Athletic Bilbao á Spáni og Bayer Leverkusen í Þýskalandi og tók þau félög sér til fyrirmyndar.
Hann skoðaði Athletic Bilbao á Spáni og Bayer Leverkusen í Þýskalandi og tók þau félög sér til fyrirmyndar.
,,Ég hef gert skýrslu fyrir Peter (Coates, framkvæmdastjóri Stoke) sem tók mig sex mánuði að gera og þrjá mánuði að skrifa," sagði Pulis við The Sun áður en hann var rekinn.
,,Ég hef sent skýrsluna til Peter og allra sem skipta máli. Þetta snýst um að breyta þessu félagi þannig að réttir aðilar séu á réttu stöðunum, gera allt rétt.
,,Ég fór að skoða Bilbao og var mjög hrifinn af þeirra stíl. Bilbao er eina liðið sem hefur alltaf verið í efstu deild á Spáni fyrir utan Real Madrid og Barcelona.
,,Mig langaði að vita hvernig liðinu gengi svona vel. Þetta er mjög svipað Stoke, þetta er bæjarlið sem er að keppa við stærstu lið heims og endar yfir væntingum tímabil eftir tímabil.
,,Svipaða sögu er hægt að segja í sambandi við Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Ég gat valið Bayern eða Dortmund en ég ákvað að velja lið sem hefur verið að spila yfir væntingum eins og við.
,,Skipulagið hjá báðum þessum liðum er til fyrirmyndar. Allir eru mjög samhæfðir og tengja unglingastarfið mjög vel við aðalliðið.
,,Þar eru þjálfarar með leikreynslu fyrir félagið að þjálfa alla leið niður í yngri flokkana. Yfirmaður unglingastarfsins hjá Bayer Leverkusen var til að mynda þjálfari aðalliðsins og kom því í Meistaradeildina.
,,Hann vildi stíga niður og vinna meira í innviðum félagsins og það gerði hann. Ég hef lokið skýrslu minni og Peter Coates mun fara yfir hana og ég er viss um að John Coates mun einnig skoða skýrsluna."
Hvort farið verði eftir skýrslunni eða ekki er óvitað, en ljóst er að Tony Pulis verður ekki partur af því. Nema auðvitað hann verði ráðinn í unglingastarfið hjá Stoke, sem verður að teljast mjög hæpið í besta falli.




