Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 16:40
Fótbolti.net
Umfjöllun: Kristján aftur með þrennu í sigri Dalvíkur/Reynis
Magni Þór Óskarsson skrifar frá Dalvík
Kristján Steinn skoraði tvö.
Kristján Steinn skoraði tvö.
Mynd: Vefur Þórs
Stuðningsmenn Dalvíkur/Reynis í stuði.
Stuðningsmenn Dalvíkur/Reynis í stuði.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Jón Örvar Arason
Dalvík/Reynir 4 - 0 Sindri
1-0 Kristján Steinn Magnússon ('8, víti)
2-0 Kristján Steinn Magnússon ('40)
3-0 Kristján Steinn Magnússon ('60)
4-0 Sigmar Bjarni Sigurðsson ('83)

Dalvík/Reynir og Sindri frá Hornafirði mættust í bráðskemmtilegum leik í Boganum á Akureyri í dag. Veturinn hérna á Dalvík hefur verið ákaflega snjóþungur og völlurinn búinn að vera á kafi síðan seint í fyrrahaust og því ekki tilbúinn strax. Hann kemur þó fagurgrænn undan snjónum og stefnt er að því að spila fyrsta leik á honum 8. júní gegn HK. En nóg um það...

Dalvíkingar mættu mjög ákveðnir til leiks og greinilega staðráðnir í að taka toppsætið eftir leik Aftureldingar og KV í gær. Sindramenn hafa einnig byrjað tímabilið vel og voru með fjögur stig fyrir leikinn, en Dalvíkingar voru of stór biti fyrir þá í dag. Á 7. mínútu átti Steinar Logi Þórðarson, vinstri bakvörður Dalvíkinga sannkallaðan Maradona sprett upp völlinn þar sem hann fór fram hjá hverjum leikmanni Sindra á fætur öðrum, sem sáu enga aðra lausn í stöðunni en að brjóta á honum inni í teig og vítaspyrna því dæmd. Úr henni skoraði Kristján Steinn Magnússon örugglega og staðan orðin 1-0.

Sindramenn hresstust aðeins eftir þetta en gerðu sig þó ekki líklega til að skora. Snorri Eldjárn Hauksson var óheppinn að koma heimamönnum ekki í 2-0 á 14. mínútu er bjargað var frá honum á marklínu eftir hornspyrnu. Á 29. mínútu virtist allt ætla að sjóða upp úr þegar einn leikmaður Sindra fékk gult spjald eftir tilraun til úrbeiningar á spilandi þjálfara heimamanna, Pétri Heiðar Kristinssyni, og nældi Snorri Eldjárn, leikmaður D/R sér einnig í gult spjald fyrir heldur agressíva framkomu. Heimamenn tóku aukaspyrnuna sem var á miðjum vallarhelmingi gestanna og Kristján Sigurólason átti fínan skalla en tókst ekki að skora.

Á 40. mínútu voru Sindramenn í sókn en Pétur þjálfari vann boltann með glæsilegri tæklingu, sendi hann fram á Kristinn Þór Björnsson sem átti svo flotta sendingu á Kristján Stein sem kom boltanum undir Maciej Majewski í markinu og staðan orðin 2-0 og þannig var hún í hálfleik.

Eftir klukkustundarleik koma þriðja mark heimamanna og fullkomnaði Kristján Steinn þar með sína aðra þrennu í þremur leikjum í deildinni! Steinar Logi Þórðarson átti þá flotta fyrirgjöf frá vinstra horninu á Kristján sem gaf sér góðan tíma að taka boltann niður og negla‘nn í hornið. Á 69. mínútu tókst Sindramönnum að koma boltanum í netið en markaskorarinn tók boltann með höndinni og markið því réttilega dæmt af.

Á 79. mínútu gerðu heimamenn tvöfalda skiptingu þegar Markús Darri Jónasson og Sigmar Bjarni Sigurðsson komu inn á fyrir Pétur Heiðar Kristinsson og Ingólf Árnason og sú skipting var ekki lengi að skila árangri því á 83. mínútu átti Markús frábæra sendingu frá vinstri kantinum inn á Sigmar sem var sloppinn í gegn og skoraði örugglega fjórða markið.

Á 89. mínútu fengu Sindramenn ágætis tækifæri til að klóra í bakkann þegar Anel Beslija setti boltann viðstöðulaust rétt framhjá markinu eftir prýðilega fyrirgjöf. Fleira markvert gerðist ekki í leiknum og niðurstaðan varð 4-0 sigur heimamanna í jafnmörgum leikjum og besta byrjun D/R á Íslandsmóti staðreynd!
Slapp
banner