Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 25. maí 2013 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky Sports 
Walcott: Þetta lið getur áorkað hverju sem er
Theo Walcott telur Arsenal geta unnið ensku úrvalsdeildina á næsta tímabili ef samherjar hans byrja að trúa meira á sjálfa sig.

Arsenal tryggði fjórða sætið á lokadegi tímabilsins og kemst því í umspil meistaradeildarinnar og segir Walcott að liðið þurfi að ná lengra á næsta tímabili.

,,Ég held að þetta Arsenal lið geti áorkað hverju sem er," sagði Walcott við The Sun.

,,Við ættum að berjast um englandsmeistaratitilinn á hverju ári, það hefur forgang.

,,Við getum komist langt í hvaða keppni sem er, svo lengi sem við trúum því. Við verðum að átta okkur á því hversu góðir við erum í raun, vegna þess að stundum hugsum við of neikvætt.

,,Þegar við lendum undir þá sérðu að leikmennirnir stíga upp. Ef við
gerum það frá upphafi tímabilsins þá getum við unnið hverja sem er."

Slapp
banner
banner