Heimild: Sky Sports | Inside Spanish Football
Zinedine Zidane er titlaður sendiherra Real Madrid en er talinn líklegur til að taka við stöðu yfirmanns íþróttamála á næstunni og greina spænskir miðlar frá því að breytingin verði opinber 3. júní.
Zidane hefur reynst Real mjög góður bæði sem leikmaður og í öðrum hlutverkum í stórn félagsins, en til dæmis var það hann sem sannfærði stjórn félagsins um að kaupa Raphael Varane á 10 milljónir evra.
Fyrsta verk Zidane sem yfirmaður íþróttamála verður væntanlega að fá Gareth Bale til félagsins frá Tottenham, en Zidane segir Bale vera þriðja besta leikmann í heimi um þessar mundir.

Einnig er tekið fram að Carlo Ancelotti, núverandi þjálfari Paris St-Germain, muni taka við þjálfarastöðu Real Madrid og vinna náið með Zidane á leikmannamarkaðinum.
Bale gæti verið á förum frá Tottenham vegna þess að félagið náði ekki að tryggja sér meistaradeildarsæti.
,,Ég er búinn að vera að horfa á Tottenham vegna þess að Gareth Bale spilar þar," sagði Zidane.
,,Hann er stöðugur markaskorari og skorar ótrúlega flott og mikilvæg mörk. Hann er mjög fljótur, hæfileikaríkur og spennandi leikmaður.
,,Er hann nógu góður fyrir Real Madrid? Auðvitað, hann er meira en nógu góður til að spila fyrir Real. Fyrir utan Ronaldo og Messi þá er hann leikmaðurinn sem ég tel vera bestan í heimi."