Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. maí 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Clough rekinn frá Sheffield United
Mynd: Getty Images
Nigel Clough, stjóri Sheffield United, hefur fengið að taka pokann sinn.

Sheffield United endaði í 5. sæti í ensku C-deildinni í vetur og datt út í undanúrslitum í umspili um sæti í Championship deildinni.

„Við þurfum að breyta til fyrir næsta tímabil," sagði Sheffield United í yfirlýsingu í dag.

Clough er 49 ára en hann er sonur Brian Clough sem var mjög sigursæll stjóri á sínum tíma.

Nigel var stjóri Derby County áður en hann tók við Sheffield United í október árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner