Kjartan Henry Finnbogason skoraði bæði mörk Horsens í 2-2 jafntefli gegn Brønshøj í dönsku B-deildinni í gær.
Kjartan hefur verið í stuði á þessu ári en hann hefur skorað tíu af fimmtán mörkum Horsens.
Horsens er í 6. sæti deildarinnar en Kjartan segir erfitt að gleðjast yfir mörkum sínum þegar liðið nær ekki að vinna.

„Ég er ánægður með að skora en eins og ég hef sagt áður þá gleðst ég ekki mikið þegar við náum ekki að vinna," sagði Kjartan Henry.
„Það var gaman að vera valinn maður leiksins hjá stuðningsmönnum Horsens og það er eitthvað sem ég er ánægður með. Það er samt erfitt að gleðjast þegar við vinnum ekki."
Athugasemdir