Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. maí 2015 19:59
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Matti Vill skoraði í tapleik Start
Matthías skorar að meðaltali í þriðja hverjum deildarleik Start.
Matthías skorar að meðaltali í þriðja hverjum deildarleik Start.
Mynd: Vefur Start
Matthías Vilhjálmsson skoraði í tapleik Start á heimavelli í norska boltanum í kvöld.

Ingvar Jónsson er varamarkvörður Start og kom ekki við sögu í leiknum.

Þá var Elías Már Ómarsson allan leikinn á bekknum hjá Vålerenga sem lagði fallbaráttulið Sandefjord örugglega af velli.

Start er þremur stigum frá fallsæti, með níu stig eftir tíu umferðir, en Vålerenga er í þriðja sæti með 20 stig.

Start 1 - 2 Sarpsborg 08
0-1 K. Tokstad ('66)
1-1 Matthías Vilhjálmsson ('69)
1-2 M. Wiig ('86)

Sandefjord 0 - 3 Vålerenga
0-1 D. Braaten ('14)
0-2 K. Waehler ('32)
0-3 D. Holm ('88, víti)
Rautt spjald: A. Gabrielsen, Sandefjord ('92)
Athugasemdir
banner
banner