Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. maí 2015 17:20
Elvar Geir Magnússon
Rauði baróninn með flautuna á Stjarnan - FH
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Rauði baróninn, Garðar Örn Hinriksson, sér um að dæma stórleik Stjörnunnar og FH í Pepsi-deildinni á morgun.

Garðar hefur því fengið tvo stærstu leikina til þessa en hann dæmdi einnig leik KR og FH í fyrstu umferð.

Aðstoðardómarar leiksins verða Áskell Þór Gíslason og Frosti Viðar Gunnarsson.

Gunnar Jarl Jónsson dæmir leik KR og ÍBV sem nú stendur yfir. Þorvaldur Árnason dæmir leik Vals og Fjölnis í kvöld og Ívar Orri Kristjánsson leik Keflavíkur og Fylkis.

Á morgun verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson með flautuna á leik Leiknis og Víkings en Þóroddur Hjaltalín dæmir ÍA - Breiðablik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner