Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 25. maí 2016 20:30
Gabríel Sighvatsson
Bjarni Jó: Sumir drættir eru dýrari en aðrir
Bjarni Jóhannsson og hans menn eru komnir í 16-liða úrslit
Bjarni Jóhannsson og hans menn eru komnir í 16-liða úrslit
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Huginn er alveg ótrúlegt lið, þeir eru duglegir, kjarkaðir og þetta var þolinmæðisverk," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Eyjamanna eftir 2-0 sigur gegn Hugin í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  0 Huginn

ÍBV átti fjöldan allan af færum í fyrri hálfleik en náðu ekki að skora.

„Þar sem við náðum ekki að skora miðað við öll þessi færi þá var þetta þolinmæðisverk og það sást þegar við skoruðum loks fyrsta markið að þá þurftu þeir að koma framar og leikurinn opnaðist meira," sagði Bjarni.

Hugin ferðaðist langa leið til að komast alla leið til Vestmannaeyja frá Seyðisfirði.

„Mig langar að nýta tækifærið og þakka Hugin fyrir góðan leik, þetta var rándýrt ferðalag og mér finnst að KSÍ ætti að skoða þessar reglur og þegar það koma upp svona rándýrir leikir að bjóða mönnum þá upp á að ferðast á mannsæmandi hátt, sumir drættir eru einfaldlega dýrari en aðrir," sagði Bjarni að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner