Víðir 2-0 Sindri
1-0 Helgi Þór Jónsson (´104)
2-0 Aleksandar Stojkovic (´120)
1-0 Helgi Þór Jónsson (´104)
2-0 Aleksandar Stojkovic (´120)
Víðir Garði verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Borgunarbikarsins og verður eina liðið úr 3.deildinni sem verður í pottinum.
Víðismenn fengu 2.deildarlið Sindra í heimsókn í kvöld. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og þurfti því að framlengja.
Þar reyndust heimamenn sterkari því Helgi Þór Jónsson kom Víði yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingarinnar og Aleksandar Stojkovic gulltryggði sigurinn á síðustu sekúndum leiksins.
Athugasemdir