Gunnar Borgþórsson var kampakátur eftir magnaðan sigur Selfyssinga á KR í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Leikurinn fór í framlengingu og skoraði Arnar Logi sigurmark Selfyssinga 116. mínútu leiksins.
„Eintóm hamingja, stolt, gleði voru fyrstu orð Gunnars eftir sigurinn í kvöld.
„Mér fannst við berjast mjög vel og svo fannst mér við bara vera góðir í fótbolta. Við vorum skipulagðir, agaðir og sýndum einmitt bara allan pakkann."
Gunnari sagðist hafa liðið mjög vel þegar hann sá boltann í netinu frá Arnari Loga.
„Mér leið svakalega vel. Maður fær þessa tilfinningu, manni langar að taka kollhnís og allskonar hluti sem maður getur ekki gert. (Arnar) Logi sýndi yfirvegun, hann var búinn að vera gríðarlega duglegur. Hann er að koma núna til baka inn í liðið, ungur strákur sem stendur sig frábærlega."
Gunnar kann vel við sig í Borgunarbikarnum en hann hefur undanfarin 2 ár farið með kvennalið Selfoss í úrslitin.
„Mér fannst þetta bara vera ákveðið ævintýri í dag svo mætum við og sjáum hvað setur."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir