Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 25. maí 2016 22:36
Magnús Valur Böðvarsson
Gústi Gylfa: Bara vítið sem fór úrskeiðis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis var að vonum svekktur með 1-0 tapið gegn Valsmönnum í kvöld. Hann hafði þetta um leikinn að segja.

Það er alltaf vont að detta útúr bikarnum og sérstaklega þar sem við spiluðum ágætis leik og það sem skildi liðin að var víti en við sköpuðum meira og gerðum kannski einhver tilköll til víta en það var tap í dag og það er svekkjandi.

Um vítaspyrnudóminn hafði hann þetta að segja

Það var tæpt og það verður ekki tekið til baka en við erum dottnir útúr bikarnum og það er það sem skiptir máli að núna getum við einbeitt okkur að deildinni.

Það fór nú ekki mikð úrskeiðis það var vítið sem þetta snérist allt um, við sköpuðum okkur fleiri færi en þeir og fannst þeir ekki öflugir í dag og mér fannst við betri aðilinn en við töpuðum leiknum.


Steinar Örn Gunnarsson markvörður Fjölnis meiddist seint í fyrri hálfleik en Gústi var vongóður um að hann yrði fljótur að ná sér.

Steinar fékk hné í læri og það ætti að taka 3-4 daga að komast útúr því og vonast til að hann verði með á móti Fylki.

Nánar er rætt við Ágúst í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner