Hugi Jóhannesson hafði í nógu að snúast þegar 2.deildarlið KV heimsótti ÍA í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Skagamenn komust yfir eftir fimm mínútna leik en náðu ekki að finna aftur leiðina fram hjá Huga.
„Mjög svekkjandi. Það hefði verið skemmtilegra ef það hefði skilað sigri. Þeir ætluðu að keyra yfir okkur og við vorum kannski ekki alveg tilbúnir í byrjun." segir Hugi.
Hugi viðurkennir að leikmenn ÍA séu betur á sig komnir líkamlega enda er KV tveim deildum neðar en ÍA.
„Seinustu 15-20 mínúturnar kom í ljós að þeir eru í aðeins betra standi en við. Við hefðum samt vel getað sett allavega eitt mark, það hefði verið skemmtilegt."
Athugasemdir