Loris Karius, nýr markvörður Liverpool, segir að Jurgen Klopp hafi sannfært sig um að ganga í raðir félagsins.
Liverpool keypti hinn 22 ára gamla Karius frá Mainz á 4,7 milljónir punda í gær.
Karius verður í treyju númer eitt hjá Liverpool en hann mun berjast við Simon Mignolet um sæti í byrjunarliðinu.
Liverpool keypti hinn 22 ára gamla Karius frá Mainz á 4,7 milljónir punda í gær.
Karius verður í treyju númer eitt hjá Liverpool en hann mun berjast við Simon Mignolet um sæti í byrjunarliðinu.
„Ég ræddi við stjórann og var með góða tilfinningu eftir það því hann sagði mér hvað hann vill gera við félagið og leikmennina," sagði Karius.
„Þetta var gott spjall við hann og það sannfærði mig um að þetta væri rétt ákvörðun."
Athugasemdir