Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 25. maí 2016 15:27
Magnús Már Einarsson
Man Utd ekki búið að semja við Zlatan
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur ekki náð samkomulagi við Zlatan Ibrahimovic um að hann gangi í raðir félagsins í sumar. Sky Sports segir frá þessu.

Zlatan er á förum frá PSG þegar samningur hans rennur út í næstu viku og sterkur orðrómur hefur verið um að hann sé búinn að semja við Manchester United.

Heimildarmenn sem eru nátengdir Zlatan hafa hins vegar sagt við Sky Sports að ekkert samkomulag sé í höfn ennþá.

Hinn 34 ára gamli Zlatan hefur þó sjálfur áhuga á að fara til Manchester United eftir að Louis van Gaal hætti með liðið.

Jose Mourinho er að taka við United en Zlatan spilaði undir hans stjórn hjá Inter 2008 og 2009.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner