Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. maí 2016 16:30
Magnús Már Einarsson
Phil Neville hættur hjá Valencia
Mynd: Getty Images
Phil Neville verður ekki áfram aðstoðarþjálfari hjá Valencia á Spáni.

Neville var ráðinn aðstoðarþjálfari síðastliðið sumar og starfaði með þremur mismunandi þjálfurum á tímabilinu, þar á meðal með bróður sínum Gary.

Pako Ayestaran hefur nú verið ráðinn þjálfari Valencia næstu tvö árin og ljóst er að Neville verður ekki áfram hjá félaginu.

„Það er kominn tími á það fyrir mig að yfirgefa Valencia og taka við öðrum tækifærum sem bjóðast mér," sagði Neville.

„Þetta var frábært ár en þegar nýir þjálfarar taka við þá vilja þeir koma með sitt starfslið með sér."
Athugasemdir
banner
banner
banner