Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mið 25. maí 2016 21:57
Magnús Már Einarsson
Godsamskipti
Bjarni er gagnrýndur á Twitter.
Bjarni er gagnrýndur á Twitter.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Selfyssingar unnu frækinn sigur í kvöld.
Selfyssingar unnu frækinn sigur í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Óvænt úrslit áttu sér stað í Borgunarbikarnum í kvöld þegar Selfyssingar slógu KR út í Frostaskjóli eftir framlengdan leik.

Margir hafa tjáð sig um leikinn á Twitter



KR Tölfræði
1 - Í fyrsta sinn dettur KR úr leik í 32-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ [21 leikur í 32 liða úrslitum alls].

Hans Steinar Bjarnason
Þetta bara gerðist í alvöru. KR komst í undanúrslit 8 ár í röð eða samfellt frá 2008-2015. #bikarinn #tímamót #fotboltinet

Hugi Halldórsson
Bæbæ Bjarni. Vel spilað leikmenn kr, sama taktík og #moyesout #selfoss #borgunarbikarinn #borgun

Soffía Hjördís
Hringið í Rúnar Kristins og borgið honum það sem hann vill.

Guðjón Guðmundsson, Gaupi
Er Selfoss að vinna KR eða er mig að dreyma. Misgóðir draumar maður. Eina.

Viðar Örn Kjartansson
EZ game í Frostaskjólinu

Teitur Örlygsson
Jesus Kristur, KR?

Freyr Alexandersson
Gunni Borgþórs hatar ekki bikarkeppnina. Mögulega kallaður bikar Gunni?
Á frábæri vegferð með @MflKkSelfoss Til hamingju Stóri GB

Garðar Gunnar
Ekki kominn júní og KR úr leik í öllum keppnum! Hefur það gerst áður? #pepsi365 #borgunarbikarinn

Ingi F Eiriksson
Hlustaði á lýsingu seinni hálfleiks í KR-útvarpinu. Það var ákveðin upplifun, en um leið skemmtilegt.

Halldor Bogason
Skortur á baráttu&vilja.. Líklegt að grétar, baldur, jónas, þorsteinn, egill, dofri t.d. myndu leggjast svona niður. Duglegt er vanmetið.

Guðmundur Brynjolfsson
Nú fer að koma yfirlýsing úr Frostaskjólinu um "fullt traust" og svo verður BG rekinn á sunnudagskvöld - nú eða mánudagsmorgun #fotboltinet

Ingimundur Guðjónsso
Mómentið þegar maður fattar að Víðir Garði komst lengra í bikarnum en KR @smarason1 þarf "stórveldið" að kaupa þig heim? #fotboltinet #vidir

Sveinn Guðmundsson
Hvernig geta menn endaði sem þjálfari hjá stórveldi eins og KR með litla þjálfarareynslu og engin afrek sem þjálfari að baki!? #fotboltinet

Birgir Þór Björnsson
Bjarni, ef þú hættir núna þá hefuru nægan tíma til að undirbúa þig fyrir FM17. Getur æft þig í honum. Vinsamlegast farðu. #fotboltinet

Elvar Geir Magnússon
Bikarinn búinn og einn sigur í fyrstu fimm Pepsi leikjunum. Það er rosa vont. #fotboltinet

Hafsteinn Gísli
Jæja, ÍBV mætir allavega ekki KR fimmta árið í röð í bikar. Ákveðinn skellur í gangi í Vesturbænum! #fotboltinet

Guðmundur Sigurðsson
Segir mikið um KR liðið þegar Bóas, stuðningsmaður KR nr. 1, fer frekar upp á skaga til að horfa og styðja KV
Athugasemdir
banner
banner
banner