Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
   fim 25. maí 2017 16:44
Ingvar Björn Guðlaugsson
Sandra María: Þetta leikkerfi hentar okkur mjög vel
Sandra María skoraði gott mark í dag
Sandra María skoraði gott mark í dag
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór/KA hélt áfram sigurgöngu sinni þegar þær fengu ÍBV í heimsókn á Þórsvöll á Akureyri í dag. 3-1 sigur varð niðurstaðan í baráttuleik þar sem heimakonur skoruðu tvö síðustu mörkin á síðustu 10 mínútunum.

Lestu um leikinn: Þór/KA 3 -  1 ÍBV

Sandra María Jessen, sem er að koma til baka úr krossbandsmeiðslum á undraskömmum tíma eins og frægt er orðið, kom inn á í hálfleik og skoraði sitt fyrsta mark í sumar þegar hún kom Þór/KA í 3-1 undir lok leiks.

„Heilt yfir bara mjög góð spilamennska. Áttum marga góða kafla en auðvitað margt sem við getum enn bætt í okkar leik og leikkerfi. Þetta er draumabyrjun aftur fyrir mig. Þetta er samt liðssigur og það þarf fleiri en einn leikmann til þess að skora,” sagði Sandra María í viðtali eftir leik.

Í næstu umferð heimsækja Þór/KA konur lið Stjörnunnar sem einnig er í toppbaráttu.

„Klárlega verður þetta hörkuleikur gegn Stjörnunni og gamla góða klisjan um að næsti leikur sé alltaf sá mikilvægasti. En við vitum að við erum að fara á erfiðan útivöll og þurfum að vera alveg tilbúnar til þess að taka þrjú stig þar“ hafði Sandra María að segja um þennan risa leik sem framundan er.

Í viðtalinu hér að ofanverðu fer Sandra frekar í saumana á leiknum og gefur upp lágmarksmarkmið fyrir eigin markaskorun í sumar.

Athugasemdir
banner
banner
banner