Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. maí 2017 21:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Viðar Örn tapaði í bikarúrslitum
Viðar Örn rétt missti af bikarmeistaratitlinum
Viðar Örn rétt missti af bikarmeistaratitlinum
Mynd: Getty Images
Viðar Örn Kjartansson og félagar í Maccabi Tel Aviv töpuðu gegn Bnei Yehuda í úrslitaleik ísraelska bikarsins í kvöld.

Viðar var í byrjunarliði Maccabi og lék hann allan leikinn.

Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og þurfti því að grípa til framlengingar. Ekkert var skorað þar heldur og réðust úrslitin því í vítaspyrnukeppni.

Maccabi tók fyrstu spyrnuna og skoraði úr henni á meðan Yehuda klúðraði sinni fyrstu spyrnu. Viðar tók þriðju spyrnuna og skoraði. Yossi Benayoun, fyrrum leikmaður Liverpool, Chelsea og Arsenal gat tryggt Maccabi sigurinn en hann klúðraði sinni spyrnu og þurfti að grípa til bráðabana.

Tal Ben Haim, fyrrum leikmaður Chelsea, Manchester City og Bolton tók fyrstu spyrnu bráðabanans fyrir Maccabi en klúðraði. Yehuda skoraði úr sinni spyrnu og tryggði sér bikarmeistaratitilinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner