Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 25. júní 2015 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild karla: Haukar mörðu Selfyssinga
Gunnlaugur Fannar gerði eina mark leiksins.
Gunnlaugur Fannar gerði eina mark leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss 0 - 1 Haukar
0-1 Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('42)

Haukar heimsóttu Selfyssinga í eina leik kvöldsins í 1. deild karla í dag og þurftu bæði lið sigur til að koma sér í efri hluta deildarinnar.

Fyrri hálfleikur var mjög tíðindalítill og það var ekkert að gerast þegar Gunnlaugur Fannar Guðmundsson kom Haukum yfir undir lok hálfleiksins.

Gunnlaugur skoraði eftir hornspyrnu sem skapaði mikinn atgang í vítateig heimamanna. Boltinn hrökk loks til Gunnlaugs sem skoraði örugglega.

Síðari hálfleikurinn var mjög rólegur þar til í lokin þegar Selfyssingar lögðu allt í sóknarleikinn. Vörn Hauka hélt vel og uppskar dýrmætan sigur.

Haukar eru í sjötta sæti deildarinnar með tólf stig á meðan Selfyssingar sitja með sárt ennið í áttunda sæti með átta stig.
Athugasemdir
banner
banner