Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 25. júní 2015 11:23
Magnús Már Einarsson
Bayern vill fá Di Maria
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria, leikmaður Manchester United, er númer eitt á óskalista þýsku meistaranna í FC Bayern.

Samkvæmt frétt Sky hefur Manchester United þó ekki áhuga á að selja Di Maria.

Argentínumaðurinn byrjaði feril sinn hjá Manchester United vel eftir að hann kom frá Real Madrid á 59,7 milljónir punda síðastliðið sumar.

Síðari hluta tímabils hallaði undan fæti og Di Maria skoraði meðal annars eitt mark frá október og til loka tímabils.

Þrátt fyrir það hefur Manchester United ekki áhuga á að selja þennan 27 ára gamla leikmann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner