Leicester City er að festa kaup á japanska landsliðsmanninum Shinji Okazaki sem er leikmaður Mainz í Þýskalandi.
Okazaki er 29 ára gamall og hefur skorað 43 mörk í 93 landsleikjum fyrir Japan auk þess að hafa skorað 27 mörk í 65 deildarleikjum fyrir Mainz síðustu tvö ár.
Okazaki er 29 ára gamall og hefur skorað 43 mörk í 93 landsleikjum fyrir Japan auk þess að hafa skorað 27 mörk í 65 deildarleikjum fyrir Mainz síðustu tvö ár.
Bild greinir frá þessu og segir kaupverðið nema um 10 milljónum evra, eða 7 milljónum punda.
Okazaki er þriðji leikmaðurinn sem kemur til Leicester eftir kaup á varnarmönnunum Robert Huth frá Stoke og Christian Fuchs frá Schalke.
Athugasemdir