Steve McClaren, stjóri Newcastle, vill kaupa varnarmanninn Richard Keogh frá sínu gamla félagi Derby.
Hinn 28 ára gamli Keogh var valinn í lið tímabilsins í ensku Championship deildinni á síðasta tímabili en talið er að hann kosti fjórar milljónir punda.
WBA og Sunderland hafa einnig sýnt áhuga á að fá írska landsliðsmanninn í sínar raðir.

Keogh kom til Derby frá Coventry árið 2012 en hann spilaði í efstu deild á Íslandi árið 2004.
Keogh var þá í láni hjá Víkingi R. frá Stoke og þótti standa sig vel.
Athugasemdir