Everton hefur keypt kantmanninn Gerard Deulofeu frá Barcelona en kaupverðið hljóðar upp á 4,3 milljónir punda.
Hinn 21 árs gamli Gerard skrifaði undir þriggja ára samning við Everton.
Hinn 21 árs gamli Gerard skrifaði undir þriggja ára samning við Everton.
Hann þekkir til á Goodison Park eftir að hafa verið í láni hjá Everton tímabilið 2013/2014.
„Það þarf ekki að kynna Gerard neitt hér. Við vitum öll af hans ótrúlegu hæfileikum," sagði Robert Martinez stjóri Everton.
Gerard er uppalinn hjá Barcelona en hann spilaði 29 leiki með Everton á þarsíðasta tímabili.
Athugasemdir