Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 25. júní 2015 22:58
Ívan Guðjón Baldursson
Mirror: Schneiderlin fer til Manchester United
Mynd: Getty Images
The Mirror heldur því fram að Morgan Schneiderlin, miðjumaður Southampton, sé á leið til Manchester United.

Schneiderlin hefur verið gríðarlega eftirsóttur af helstu félögum Englands í meira en ár og fær loksins að yfirgefa Southampton sem hélt honum frá Arsenal síðasta sumar.

Schneiderlin er 25 ára gamall Frakki sem hefur verið burðarstólpi í liði Southampton síðustu sjö ár.

Kaupverðið er talið nema um 24 milljónum punda og bætist Schneiderlin við gífurlega sterkan varnartengiliðahóp Man Utd sem inniheldur menn á borð við Michael Carrick, Daley Blind, Ander Herrera og Marouane Fellaini.
Athugasemdir
banner
banner
banner