Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 25. júní 2015 15:03
Magnús Már Einarsson
Tyrone Mings verður dýrasti leikmaðurinn í sögu Bournemouth
Mynd: Getty Images
Nýliðar Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni eru að kaupa varnarmanninn Tyrone Mings frá Ipswich.

Mings kostar átta milljónir punda en hann verður dýrasti leikmaðurinn í sögu Bournemouth.

Reiknað er með að félagaskiptin gangi í gegn fyrir helgi.

Hinn 21 árs gamli Minsg hefur verið orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni undanfarna mánuði eftir góða frammistöðu með Ipswich.

Mings hefur komist í fréttir fyrir góðmennsku utan vallar en hann bauð heimilislausum í mat á jólunum 2013 og í fyrra endurgreiddi hann stuðingsmönnum Ipswich treyjur með nafni hans aftan á eftir að hann skipti um treyjunúmer.
Athugasemdir
banner
banner