„Við erum að búa til einn risastóran fótboltaheim. Allir notendur sem fara inn í leikinn spila á móti hvor öðrum," sagði leikjahönnuðurinn Guðni Rúnar Gíslason í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á dögunum.
Viðtalið má heyra í spilaranum hér að ofan en þar var hann í stuttu viðtali um tölvuleikinn Kickoff CM sem er á leiðinni.
Viðtalið má heyra í spilaranum hér að ofan en þar var hann í stuttu viðtali um tölvuleikinn Kickoff CM sem er á leiðinni.
„Þetta er að mörgu leyti einfaldari og aðgengari leikur en gamli góði Football Manager. Þú færð þinn klúbb og þú átt að byggja hann upp, eignast betri leikmenn og halda klúbbnum gangandi."
„Leikurinn verður aðgengilegur í vafra strax og svo koma spjaldtölvur og símar í kjölfarið. Erlend markaðssetning fer svo vonandi af stað með haustinu."
Lesendur Fótbolta.net munu fá að prófa leikinn fyrstir. Fylgstu með.
Athugasemdir