Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júní 2016 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Darmian um að mæta De Gea: Buffon sá besti allra tíma
Darmian til vinstri, Buffon til hægri og De Rossi í miðjunni
Darmian til vinstri, Buffon til hægri og De Rossi í miðjunni
Mynd: Getty Images
Matteo Darmian er á því máli að David de Gea, liðsfélagi sinn hjá Man. Utd, sé ekki á sama gæðastigi og Gianluigi Buffon, samherji sinn hjá ítalska landsliðinu.

Darmian og félagar hans hjá ítalska landsliðinu mæta de Gea og félögum hans hjá Spáni í 16-liða úrslitunum á EM í Frakklandi. Darmina er spenntur fyrir því að mæta de Gea.

„Það er frábært að spila gegn David, hann er einn af bestu markvörðum í heiminum. Auðvitað verður erfitt að skora, en við erum einnig með frábæran markvörð," sagði Darmian.

„Þeir eru tveir af bestu markvörðum í heimi, og já, það eru líkindi með David og Gigi, klárlega. Að mínu mati er þó Buffon besti markvörður allra tíma. Sem varnarmaður er ég heppinn að spila með honum."
Athugasemdir
banner
banner
banner