banner
   lau 25. júní 2016 08:49
Jóhann Ingi Hafþórsson
Annecy
Eiður Smári: Viljum gera ennþá meira og komast ennþá lengra
Icelandair
Eiður á æfingu með liðinu
Eiður á æfingu með liðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen, sat fyrir svörum fréttamanna á fundi í dag sem haldinn var í tilefni leiks Íslands og Englands í 16 liða úrslitum á EM.

Hann var spurður út í hvað leikmenn töluðu um eftir leikinn gegn Austurríki en Eiður sagði vel valin orð við hópinn.

„Þetta er svolítið blásið upp, Við vöknuðum glaðir eftir Austurríki, við vorum allir glaðir með þá stöðu sem við vorum í, ég spurði leikmennina og sjálfan mig hvort við vorum ánægðir með að hafa náð markmiðinu eða höfum við meira í okkur. Við viljum ekki bara vera hér og komast úr riðlakeppninni, við viljum gera ennþá meira, hafa meiri orku í leikina til að komast ennþá lengra," sagði Eiður.



Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner