Sparkspekingurinn Robbie Savage sat fyrir aftan Guðmund Benediktsson í fagnaðarlátunum gegn Austurríki.
Gummi Ben hefur vakið gríðarlega athygli fyrir tryllinginn sem hann tók þegar Arnór Ingvi Traustason skoraði sigurmark Íslands gegn Austurríki.
Savage sat fyrir aftan Gumma og segir ástríðuna hafa verið svakalega hjá honum.
„Þegar Ísland tryggði sér sæti í 16-liða úrslitunum á EM, þá sat ég fyrir aftan lýsandann sem missti sig," Skrifaði Savage í pistil sinn hjá Mirror.
„Það var sprenghlægilegt að sjá Guðmund Benediktsson lýsa markinu hjá Arnóri Ingva Traustasyni. Ástríðan var dásamleg."
„Ímyndið ykkur nú hvernig Benediktsson, mun haga sér ef Ísland skorar sigurmark undir lokin gegn Englandi."
Fólk hefur óskað eftir því að við bjóðum upp á mynd-í-mynd möguleika með lýsingum Gumma Ben. Svona liti það út. https://t.co/NZUBL6i0Ol
— Síminn (@siminn) June 23, 2016
Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.
FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir