Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 25. júní 2017 18:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Matti Villa búinn að skora 8 mörk í síðustu 7
Funheitur.
Funheitur.
Mynd: Rosenborg
Matthías Vilhjálmsson hefur verið sjóðheitur að undanförnu með norsku meisturunum í Rosenborg.

Hann var á skotskónum í dag þegar liðið lagði Sogndal í norsku úrvalsdeildinni, 3-0. Hann skoraði fyrsta mark leiksins.

Matthías hefur eins og áður segir verið sjóðheitur að undanförnu, en hann er kominn með átta mörk í síðustu sjö leikjum sínum með liðinu, það er í deild og bikar.

Hann skoraði á dögunum þrennu í bikarnum.

Matthías hefur ekki verið inn í myndinni hjá Heimi Hallgrímssyni, landsliðsþjálfara, en það er spurning hvort það muni breytast eitthvað á næstunni.



Athugasemdir
banner
banner
banner