Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. júní 2018 17:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Busquets hrósar Iniesta: Hann er að gera frábæra hluti
Iniesta skoraði sigurmark Spánverja í úrslitaleik HM 2010 gegn Hollandi.
Iniesta skoraði sigurmark Spánverja í úrslitaleik HM 2010 gegn Hollandi.
Mynd: Getty Images
Spánn er í nokkuð góðum málum fyrir lokaumferðina í B-riðli á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi en þeir mæta Marokkó í kvöld.

Andres Iniesta er að spila á sínu síðasta Heimsmeistaramóti á ferlinum og hann hefur verið í byrjunarliði Spánar í báðum leikjum liðsins á mótinu, Sergio Busquets nýtur þess að spila með Iniesta.

„Hann er að gera frábæra hluti, þetta er hans síðasta Heimsmeistaramót og mér finnst hann vera leggja meira á sig núna en áður."

„Iniesta er alltaf klár í slaginn þegar kallið kemur frá þjálfaranum, það vita allir hversu mikill gæða leikmaður hann er og náungi," sagði Busquets um Iniesta.

Leikur Spánar og Marokkó hefst klukkan 18:00.

Sjá einnig:
Diego Jóhannesson spáir í leik Spánar og Marokkó
Athugasemdir
banner
banner
banner