fös 25. júlí 2014 20:04
Jóhann Ingi Hafþórsson
Antoine Griezmann færist nær Atletico Madrid
Antoine Greizmann.
Antoine Greizmann.
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann, leikmaður Real Sociedad, er nálægt því að ganga til liðs við Atletico Madrid.

Goal greinir frá þessu í dag, Giezmann er franskur landsliðsmaður en hann var með Frökkum á HM og stóð sig vel.

Liðin byrjuðu að ræða um félagsskiptin fyrir um mánuði síðan en nú virðist sem samkomulag sé að nálægt því að verða að veruleika.

Talið er að Griezmann sé með klásúlu í samningi sínum upp á 30 milljón evrur en Atletico vilja ekki borga meira en 25 milljónir.

Griezmann er búinn að vera hjá Sociedad síðan 2005 en hann er samningsbundinn til 2016, en hann er sagður vilja spila með liði í Meistaradeildinni.

Athugasemdir
banner
banner