Breiðablik 0 - 1 Stjarnan
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir ('44)
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir ('44)
Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum í Borgunarbikar kvenna með sigri á Breiðablik, 1-0.
Stjarnan mætir því Selfossi á Laugardalsvelli í úrslitaleiknum en Selfoss vann Fylki í gær.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði eina mark leiksins rétt fyrir leikhlé en markið verður að skrifast á Sonný Láru Þráinsdóttur sem missti skot Hörpu klaufalega í netið.
Leikurinn var jafn og spennandi og hefði í raun getað dottið hvoru megin sem er.
Stjarnan er með gott lið og refsar fyrir mistök eins og þau sem Sonný gerði í kvöld en Breiðablik tókst ekki að kvitta fyrir þau og því fór sem fór.
Athugasemdir