Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 25. júlí 2014 10:02
Magnús Már Einarsson
Gunnlaugur Hlynur í Breiðablik (Staðfest)
Gunnlaugur Hlynur Birgisson.
Gunnlaugur Hlynur Birgisson.
Mynd: KB
Gunnlaugur Hlynur Birgisson hefur gengið til liðs við Breiðablik á nýjan leik.

Gunnlaugur Hlynur lék með Blikum í yngri flokkunum en hann hefur undanfarið tvö og hálft ár verið í unglinga og varaliði Club Brugge í Belgíu.

Þessi 19 ára gamli leikmaður er nú kominn aftur á heimaslóðir í Kópavogi líkt og jafnaldri hans Oliver Sigurjónsson sem kom frá AGF í Danmörku fyrr í vikunni.

Gunnlaugur Hlynur á að baki átta leiki með U19 ára landsliði Íslands og þrettán leiki með U17 ára landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner