Stjarnan er komin áfram í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar eftir ótrúlegan en jafnframt stórkostlegan 3-2 sigur á skoska úrvalsdeildarliðinu Motherwell í gærkvöldi.
Nýjasti liðsmaður Stjörnunnar, Jóhann Laxdal var ekki með leikheimild í leiknum í gærkvöldi en tók virkan þátt í fögnuði liðsins. Hann var með GoPro vel á sér frá Fótbolta.net allan gærdaginn.
Nýjasti liðsmaður Stjörnunnar, Jóhann Laxdal var ekki með leikheimild í leiknum í gærkvöldi en tók virkan þátt í fögnuði liðsins. Hann var með GoPro vel á sér frá Fótbolta.net allan gærdaginn.
Í myndbandinu hér að ofan sést þegar hann stjórnar fögnuði Stjörnuliðsins ásamt hundruðum stuðningsmönnum Stjörnunnar eftir sigurinn í gærkvöldi.
Myndband af degi Jóhanns Laxdal birtist hér á Fótbolta.net seinna í dag.
Sjá einnig:
Dagur með Atla Sigurjóns - „McGóðan daginn"
Athugasemdir