Ein helsta fótboltafrétt landsins í lok júlí 2012 var þegar Steven Lennon, þá leikmaður Fram, þríbrotnaði á rist eftir tæklingu Jóns Ragnars Jónssonar í leik gegn FH. Þeir tveir eru orðnir samherjar í dag en Lennon er genginn í raðir FH.
Jón Ragnar fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt í leiknum en Lennon spilaði ekki meira það sem eftir lifði tímabils.
Lennon og Jón Ragnar skildu þó sem félagar eftir þessa tæklingu. Jón heimsótti Lennon á sjúkrahúsið.
,,Fékk heimsókn frá Jóni Jónssyni. Hann færði mér nokkra DVD diska og plötuna sína. fallega gert af honum. Takk félagi," skrifaði Steven Lennon á Twitter síðu sína 31. júlí árið 2012.
Jón Ragnar og Lennon gætu spilað í fyrsta sinn saman á sunnudaginn þegar FH mætir Fylki.
Athugasemdir