Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 25. júlí 2014 07:00
Daníel Freyr Jónsson
Nemanja Vidic vill fá Chicharito til Inter
Nemanja Vidic.
Nemanja Vidic.
Mynd: Getty Images
Nemanja Vidic, leikmaður Inter, segist vilja sjá sinn fyrrum samherja Javier 'Chicharito' Hernandez, framherja Manchester United, koma til félagsins.

Framtíð þessa snaggaralega framherja er í mikilli óvissu, en hann er aftarlega í goggunarröðinni hjá United. Hefur hann verið orðaður við brottför frá félaginu og hefur Inter verið nefnt í þeim efnum.

,,Þetta er auðvitað undir félögunum komið. Augljóslega þá væri Chicharito góð kaup fyrir öll félög og við yrðum ánægðir með að fá hann," sagði Vidic.

Vidic kom á frjálsri sölu til Inter í sumar eftir að hafa verið hjá United.
Athugasemdir
banner
banner