Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fös 25. júlí 2014 21:55
Arnar Daði Arnarsson
Ólafur Þór: Stefnum á að taka báða titlana
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar gat fagnað í kvöld efir að lið hans tryggði sér sæti í úrslitaleik Borgunarbikars kvenna eftir 1-0 sigur í Kópavoginum gegn Breiðablik.

Annar leikur liðanna í vikunni og Stjarnan sigrar báða leikina með sömu markatölu. Leikirnir spiluðust báðir eins, voru jafnir og lokaðir og skyldi liðin lítið af.

,,Þetta var hörkuleikur allan tímann og bæði lið fengu þolanleg færi. Sandra varði frábærlega og við skölluðum framhjá úr dauðafæri. Mínar stelpur höfðu meiri kjark og þor og kláruðu þetta."

,,Mér fannst þessi leikur betur spilaður af okkar hálfu heldur en á þriðjudaginn. Við vorum ekki nægilega góðar í síðasta leik. Það er sama baráttan og stelpurnar þekkja vel inn á hvor aðra. Það var ekki mikið um opinfæri en það hefur dugað í báðum leikjunum."

,,Við erum í þessu til að vinna. Það er alveg klárt. Við stefnum á að taka báða titlana sem í boði eru. Við verðum að sjá hvað gerist," sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar að lokum.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner