fös 25. júlí 2014 10:00
Magnús Már Einarsson
Ragnar Þór í Selfoss (Staðfest)
Ragnar Þór Gunnarsson.
Ragnar Þór Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss hefur fengið framherjann Ragnar Þór Gunnarsson á láni frá Val.

Ragnar var iðinn við kolann á undirbúningstímabilinu en hefur lítið spilað í sumar.

Hann hefur samtals komið við sögu í þremur leikjum í Pepsi-deildinni.

Ragnar, sem er fæddur árið 1994, mun nú leika með Selfyssingum út tímabilið í 1. deildinni.

Hann gæti spilað sinn fyrsta leik strax í kvöld þegar Selfoss fær Víking Ólafsvík í heimsókn.
Athugasemdir
banner
banner
banner