Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 25. júlí 2016 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fyrirliði Arsenal frá í nokkra mánuði
Mynd: Getty Images
Per Mertesacker er meiddur á hné og verður frá í nokkra mánuði. Miðvörðurinn á eftir að gangast undir frekari læknisskoðanir en fyrstu fregnir segja mögulegt að heimsmeistarinn fyrrverandi verði frá í allt að fimm mánuði.

Mertesacker er fyrirliði Arsenal og hefur verið hjá félaginu í fimm ár. Hann er 31 árs gamall og hefur leikið yfir 200 leiki fyrir félagið.

Þetta eru afar slæm tíðindi fyrir Arsenal þar sem brasilíski miðvörðurinn Gabriel hefur einnig verið að glíma við meiðsli og líklegt að þessi meiðsli neyði Arsene Wenger til að kaupa miðvörð fyrir upphaf enska tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner