mán 25. júlí 2016 22:34
Jóhann Ingi Hafþórsson
Víkinni
Gary Martin á leiðinni til Noregs
Gary Martin gæti hafa spilað sinn siðasta leik á Íslandi.
Gary Martin gæti hafa spilað sinn siðasta leik á Íslandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Milos Milojevic staðfesti i kvöld að Gary Martin mun fara til Noregs á morgun og byrja að æfa með Lilleström.

„Hann er að fara að skoða aðstæður og þeir eru að fara að skoða hann. Þeir ætla að kíkja hvort hann hefur nokkuð gleymt að spila fótbolta," sagði Milos léttur.

Gary hittir þá sinn gamla þjálfara í Rúnari Kristinssyni en þeir voru saman hjá KR.

„Ég fer á morgun, þetta gæti verið minn síðasti leikur hjá Víking og það gæti verið að svo sé ekki.Ég kem til baka á föstudaginn og við sjáum hvað gerist," bætti Gary sjálfur við.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner