mán 25. júlí 2016 11:15
Elvar Geir Magnússon
Íþróttastjóri Inter: Seljum ekki Icardi
Mauro Icardi, fyrirliði Inter.
Mauro Icardi, fyrirliði Inter.
Mynd: Getty Images
Piero Ausilio, yfirmaður íþróttamála hjá Inter, segir að Mauro Icardi verði ekki seldur til Napoli.

Napoli vill fá Icardi til að fylla skarð Gonzalo Higuain sem er á leið til Juventus.

„Við funduðum með Napoli en erum ekki að fara að selja Icardi. Það er út úr myndinni. Ég hef ekki áhuga á því sem Napoli er tilbúið að bjóða," segir Ausilio.

„Við ætlum ekki að selja hann, það er einfalt. Það er ekkert vandamál varðandi leikmanninn. Hann leggur sig allan fram, hann hefur verið hjá okkur í mörg ár og varð fyrirliði félags með magnaða sögu."

Ausilio segir að stefnan sé að gera nýjan samning við Icardi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner