Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. júlí 2016 12:03
Magnús Már Einarsson
Joe Allen í læknisskoðun hjá Stoke
Joe Allen er á leið til Stoke.
Joe Allen er á leið til Stoke.
Mynd: Getty Images
Joe Allen, miðjumaður Liverpool, er á leið í læknisskoðun hjá Stoke City.

Liveprool samþykkti 13 milljóna punda tilboð frá Stoke í Allen á dögunum.

Hinn 26 ára gamli Allen á einungis ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool en hann var valinn í úrvalslið EM í Frakklandi eftir góða frammistöðu með Wales.

Allen kom til Liverpool frá Swansea árið 2012 og síðarnefnda félagið vildi fá hann aftur í sínar raðir.

Liverpool hafnaði átta milljóna punda tilboði frá Swansea í síðasta mánuði og nú virðist Allen enda á að fara til Stoke.
Athugasemdir
banner
banner
banner