Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 25. júlí 2016 19:44
Ívan Guðjón Baldursson
Joe Allen til Stoke (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Stoke City er búið að ganga frá kaupunum á velska miðjumanninum Joe Allen sem stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag.

Allen, sem er 26 ára gamall, var öflugur á EM í sumar og kostar Stoke 13 milljónir punda. Allen átti aðeins ár eftir af samningi sínum við Liverpool og er nú búinn að skrifa undir fimm ára samning við Stoke.

Liverpool hafnaði átta milljóna punda boði frá Swansea City fyrr í sumar og var Stoke fyrsta félagið til að bjóða ásættanlega upphæð.

Allen hefur leikið yfir 100 leiki fyrir Liverpool á þeim fjórum árum sem hann hefur verið hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner