Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 25. júlí 2016 09:25
Magnús Már Einarsson
Ronaldo heimsótti Conor McGregor
Mynd: Instagram - Connor McGregor
Cristiano Ronaldo er ennþá í sumarfríi eftir að hafa orðið Evrópumeistari með Portúgal.

Hann kíkti í gær til Las Vegas þar sem hann hitti UFC stjörnuna Conor McGregor.

McGregor, sem er góður vinur Gunnars Nelson, er í æfingabúðum í Las Vegas fyrir bardagann við Nate Diaz þann 20. ágúst næstkomandi.

Ronaldo heilsaði upp á McGregor í gær og fylgdist með undirbúningi hans fyrir bardagann í næsta mánuði.

Þeir félagar birtu síðan báðir myndir frá heimsókninni á Instagram eins og sjá má hér að neðan.

Great to see you bro!!💪🏽🔝

A photo posted by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on


Athugasemdir
banner
banner