Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. júlí 2016 16:11
Elvar Geir Magnússon
Ruglaði hetju Stjörnunnar saman við son sinn
Hilmar, Jóhann og Heiðmar!
Hilmar, Jóhann og Heiðmar!
Mynd: Samsett
Það getur ýmislegt gerst í beinum útsendingum þar sem stressið er oft mikið og menn þurfa að vera fljótir að hugsa.

Jóhann Óli Eiðsson, starfsmaður 365 miðla, lenti í skemmtilegum nafnaruglingi í útsendingu á Stöð 2 Sport frá leik Stjörnunnar og Fylkis í gækvöld.

Jóhann var þá að taka viðtal við Hilmar Árna Halldórsson, hetju Stjörnunnar í leiknum, en byrjaði á því að kalla hann Heiðmar.

„Heiðmar... nei Heiðmar? Það er sonur minn," sagði Jóhann Óli sem er ansi vanur því að nota nafnið Heiðmar!

Jóhann hafði húmor fyrir þessum mistökum og birti klippu af þeim á Twitter. „Það verður að segjast að ég átti stjörnuleik í beinni í gær sem Stefán Óli," skrifaði Jóhann á Twitter en fleiri voru í nafnarugli í útsendingunn þar sem Hjörtur Hjartarson kynnti Jóhann Óla inn sem Stefán.

Sjáðu klippuna hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner